top of page
SELT / SOLD  - Hús 1 - SG einingarhús til flutnings - 205 fm. auk 43 fm. .

SELT / SOLD - Hús 1 - SG einingarhús til flutnings - 205 fm. auk 43 fm. .

Vegna skipulagsbreytinga eru til sölu og flutnings tvær SG húseiningar, tengdar saman með viðbyggingu.
Hvor eining er 80 fm. að grunnfleti eða samtals 160 fm.
Á milli þeirra er tengibygging á tveimur hæðum, neðri er að grunnfleti 45,7 og efri 43 fm. Heildargólfflötur á neðri hæð samtals 205,7 fm. og alls 248,7 með efra lofti.
Í dag skiptast einingarnar í 4 rými, hver 40 fm auk miðjurýmis. Dúkur er á gólfum.
Húseiningar tvær voru byggðar af SG húseiningum á Selfossi árið 2009 og fluttar á staðinn í sitt hvoru lagi.
Þær hafa verið notaðar sem skólabyggingar og hvíla á staðsteyptum sökkuleiningum sem fylgja húsunum.  Við smíði þeirra var gert ráð fyrir að byggingarnar myndu víkja fyrir nýbyggingum.
Ofnar og lagnakerfi fylgir.
Ástand hússins svo sem gluggar, hurðir og ytra byrði er mjög fínt en sökum raka í skriðkjallara þá má ætla að dregara og gólfbita þurfi að endurnýja.
Húsið er til afhendingar um miðjan maí og skal flutningi þess lokið í fyrstu viku júlí.
Nánari upplýsingar í síma 8981000.
Hér má sjá myndband.
Verð: 6.9 m. án vsk.

Getum útvegað trausta aðila sem gera tilboð í flutning sem og teikningar fyrir skipulagsyfirvöld sem innihalda:  aðaluppdrátt, grunnmynd, útlit og snið, skráningartöflu, afstöðumynd, gluggateikningar, deili í þakloftun, burðarþol og tenging í frárennsli og neysluvatn.

Einnig erum við með aðila sem steypir sökkuleiningar 50 sm. háar og 26 sm breiðar - 17.000 kr. án vsk. lengdarmeterinn - líklega fimmtungi ódýrara en aðrir bjóða. Sími:  7660505

Fylgdu okkur á www.facebook.com/efnisveitan
Endurnýtum & spörum

 

  •  

6.900.000krPrice
SELT / SOLD

Áhugi að skoða/kaupa þessa vöru?
Hafir þú áhuga á þessari vöru fyllir þú út fyrirspurnar formið hér til hliðar og sendir okkur.
Við svörum þér með upplýsingum um staðsetningu o
g tengilið vörunnar. Langflestar vörur eru staðsettar hjá eiganda vörunar sem að jafnaði er á höfuðborgarsvæðinu en töluvert er líka á landsbyggðinni.
Sé varan merkt SELD/SOLD þá er hún seld. 

 

Hvernig er greitt fyrir vöruna? 

Þegar kaupandi hefur skoðað vöruna og tekið ákvörðun að kaupa/endurnýta hana gerir Efnisveitan reikning á kennitölu kaupanda og kröfu í banka.
Efnisveitan er ekki með posa né tekur reiðufé.  Greiðsla miðast samhliða afhendingu vörunar.

Fyrirspurn

Móttekið! Þú heyrir frá okkur

bottom of page